|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Íslandsmeistaramótið í tímatöku - úrslit
föstudagur, ágúst 20

Gunnlaugur Jónasson og Ásdís Kristjánsdóttir voru krýndir Íslandsmeistarar í tímatöku á Krýsuvíkurmalbikinu í kvöld. Gunnlaugur hjólaði á 27:08 og setti í leiðinni nýtt brautarmet og mesta hraða sem hefur náðst í 20 km tímatöku á Íslandi, eða 44,23 km/klst. Ásdís Kristjánsdóttir kom í mark á tímanum 34:50.

Ágætis aðstæður voru til hljólreiða í kvöld, sól og óvenju hlýtt. Þó blés vindur fullstíft af austri til að um allra ákjósanlegustu aðstæður væri að ræða. Nýtt brautarmet Gunnlaugs verður því að teljast nokkuð afrek. 30 hjólreiðamenn voruskráðir til leiks, þar af 25 í karlaflokki og 5 í kvennaflokki. Í kvennaflokki sigraði Ásdís nokkuð örugglega, en hún var 41 sekúndu á undan Maríu Ögn sem tók 2. sætið.

Í karlaflokki var fyrirfram búist við harðri keppni á milli Hafsteins Ægis, Péturs Þórs og Gunnlaugs. Hafsteinn opnaði hraðast og var kominn með 8 sekúnda forskot á Gunnlaug við fyrsta snúning en Hafsteinn gaf svo eftir þegar líða tók á. Gunnlaugur hélt sínu tempói og skreið smá saman jafnt og þétt fram úr þeim félögum og endaði á að vinna mjög sannfærandi sigur rúmri hálfri mínútu á undan Pétri Þór sem hafnaði í 2 sæti. Er þetta í 6.sinn sem Gunnlaugur vinnur Íslandsmeistaratitilinn í tímatöku, en síðast landaði hann sigri 2005.

Nánari úrslit má sjá hér

Myndir frá verðlaunaafhendingu

Myndir sem Kristinn R. Kristinsson tók

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter