Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
3. dagur
föstudagur, júlí 23
Hafsteinn Ægir kom í mark í dag um 3.30 min á eftir Torkil Veyhe sem nú leiðir Færeyjaryúrinn 10 sek á undan Kristian Gosvik frá Danmörku og 3:20 á undan Hafsteini. Pétur Þór er nú í 5. sæti samanlagt. 8 hjólamenn voru í fremsta hóp upp á fyrsta fjall en farið var yfir 2 fjöll, fram og til baka í dag samtals 1985 metra klifur, ígildi þess að hjóla upp Kambana 6 sinnum og bæta svo Bláfjallaleið við. Þessi 8 manna hópur skiptist svo upp tvo 4 manna hópa í annarri brekku og voru Gunnlaugur, Gunnar Dahl, Gúdmundur og Pétur Þór í þeim aftari en Hafsteinn og Árni Már í þeim fremri ásamt Torkil og dananum Kristian. Hafsteinn og Árni voru mjög ánægðir með hlutföllinn í hópnum og unnu mest í sínum hóp í mótvindinum um miðbik keppninnar. Torkil átti því nóg eftir þegar kom að Hestinum sem er alræmt fjall, 401 metra klifur, 9% halli og farið yfir fram og til baka rétt fyrir endamörkin. Í efri hlíðum þess tókst Torkil að komast frá Hafsteini ásamt dananum Kristian en Hafsteini tókast að loka bilinu á niðurleiðinni. Torkil stakk svo aftur af á leiðinni upp fjallið í seinna skiptið og þá hélt það. Til að bæta gráu ofan á svart, lenti Hafsteinn aftan á bíl sem var að þvælast fyrir honum rétt fyrir endamörk en virðist hafa sloppið án teljandi meiðsla með smáskrámur. Súsanne Skylv Sörensen sigraði í kvennaflokki með yfirburðum eins og undanfarna daga.