Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
2. dagur
fimmtudagur, júlí 22
Hafsteinn Ægir tók sprettinn í Runnavík í dag eftir 110 km á Austurey og Straumey. Gunnar Dahl varð annar og Daninn Kristian Gosevik þriðji. Torkil Veyhe varð 4. en heldur öðru sæti í heildarkeppni á eftir Hafsteini. Pétri Þór er þriðji. Gunnlaugur Hjólamaður féll niður í 11 sæti í heildarkeppni eftir að lenda í vandræðum með hjólið um 20 km frá endamörkum. Hlöðver sem hefur verið með hálsbólgu varð að hætta en Bertel varð 27 og Daníel Smári 30. Hjólamenn eru nú í 6. sæti í liðakeppninni sem HFR leiðir á undan liði hjólreiðafélags Þórshafnar.