Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
1. dagur
miðvikudagur, júlí 21
Hafsteinn Ægir Geirsson vann 1. dagleið í Færeyjatúrnum á tímanum 11:16, 5 sekúndum á undan Torkil Veyhe og 20 á undan liðsfélaga sínum Pétri Þór Ragnarsyni. Gunnlaugur Jónasson, Hjólamönnum kom í mark sekúndu á eftir Pétri í fjórða sæti. Aðstæður voru ekki eins góðar og í fyrra, það blés allhvass vindur á móti keppendum á leið að snúningskeilu. Tími keppenda varð því um mínútu lakari en í fyrra en þá vann Torkil Hafstein með 5 sek. og sigraði einnig heildar keppnina. Þannig að úrslit dagsins lofa góðu fyrir Hafstein sem virðist vera í fantaformi um þessar mundir og til alls líklegur Í kvennaflokki sigraði "Íslandsvinurinn" Súsanna Skylv Sörensen með yfirburðum.
Í liðakeppninni eru Hjólamenn í þriðja sæti á eftir liði TSF í öðru og HFR í 1. sæti.