Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Úrslit í tímatöku 2.6.10
miðvikudagur, júní 2
Karen Axelsdóttir og Gunnlaugur Jónasson sigruðu í kvenna- og karlaflokki í 20 km tímatökukeppni sem fram fór á Krýsuvíkurvegi í kvöld. Karen sigraði kvennaflokk með miklum yfirburðum en mjórra var á munum í karlaflokki en einungis skildu að 4 sekúndur milli Gunnlaugs og Péturs Þórs Ragnarssonar sem var í 2. sæti. Í þriðja sæti kom svo þríþrautakappinn Torben Gregersen. Í kvennaflokki hafnaði Ásdís Kristjánsdóttir í 2. sæti og María Ögn Guðmundsdóttir í 3. sæti.
Metþáttaka var í tímatökukeppninni í kvöld og er þetta fjölmennasta tímatökumót sem haldið hefur verið á Íslandi en alls voru þáttakendur 42, þar af 8 í kvennaflokki. Munaði þar mestu um góða þáttöku þríþrautafólks en sú íþróttagrein er greinilega í mikilli uppsveiflu um þessar mundir.
Sérstakar þakkir fær mótsstjórn en hana skipuðu: Haukur Eggertsson Emil Þór Guðmundsson Guðni Páll Daníelsson Gunnar Carlsen Christina Stadler