Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Snæfellsneshringurinn 2010 - uppfært
miðvikudagur, júní 23
Snæfellsneshringurinn 2010
Hjólamenn standa fyrir 161 km (100 mílna) góðgerðarkeppni á Snæfellsnesi laugardaginn 3. júlí 2010.
-Keppnin byrjar kl. 10.00 við Vegamót, þar sem Vatnaleiðin byrjar á sunnanverðu Snæfellsnesi.Hjólaður verður réttsælis hringur um Snæfellsnes.Sjá nánar kort af keppnisleiðinni og hæðaprófíl.Keppnisbrautin er með samtals hækkun upp á rúmlega 1200 metra.
-Farið verður eftir keppnisfyrirmælum Hjólreiðanefndar ÍSÍ, (götuhjól) og er keppt í opnum flokki karla og kvenna. Keppendur skulu hafa náð 16 ára aldri. Að auki veður boðið upp á flokk fyrir þríþrauturhjól (hjól með liggistýri, plötugjörð og öðrum búnaði til að minnka vindmótstöðu).Þríþrautarflokki verður startað sér eftir að aðrir keppendur eru lagðir af stað.
-Boðið verður upp á liðakeppni.Hvert lið má skipa 3 til 5 keppendum og telja þrír bestu tímarnir.
-Verðlaun verða veitt í karla-, kvenna- og þríþrautarflokki. Einnig verða veitt verðlaun fyrir 1. sætið í liðakeppninni.
-Tímamörk eru 7 tímar (23 km/klst), þó verða þau lengd ef aðstæður krefjast, s.s. ef 1. maður er lengur en 5 ½ klst. að hjóla brautina (29 km/klst).
-Vatnsstöð verður rétt fyrir utan Ólafsvík vestan megin eftir um 98 km þar sem í boði verða bananar, vatn og orkudrykkur.
-Fylgdarbílar eru leyfðir. Þeir eru háðir fyrirmælum keppnisstjóra og skal gefa keppnisstjórn upp símanúmer bílstjóra. Þó fylgdarbíll fylgi ákveðnum keppenda að jafnaði, skulu bílstjórar allra fylgdarbíla vera til reiðu til hjálpar öðrum keppendum, að beiðni keppnisstjóra og eftir því sem þörf er á.
-Fylgdarbíll skal gæta þess að trufla ekki eðlilegan gang keppninnar og halda sig a.m.k. 30 metrum fyrir aftan keppanda sem hann fylgir. Ekki er leyfilegt fara upp að hlið keppenda síðustu 15 km áður en komið er í endamark.
-Keppendum er skylt að vera með farsíma á sér og skulu hringja strax í keppnisstjórn ef þeir hætta keppni.
- Skráning er opin til 30. júní og er þátttökugjaldkr. 4.500.Vinsamlegast senda tölvupóst á sigurgeir(hjá)tono.is með nafni og kennitölu ásamt því að senda greiðslukvittun úr heimabanka.
Bankaupplýsingar:
Reikningur nr. 0101-26-705815
kt. 580105-0840
-Keppnin er góðgerðarkeppni. Allur ágóði rennur til Reykjalundar.
-Keppendur eru á eigin ábyrgð og skulu vera með viðurkenndan hjólahjálm.