Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Ólympísk þríþraut í Hafnarfirði
sunnudagur, júní 6
Nokkrir Hjólamenn tóku daginn snemma og voru mættir til að fylgjast með Ólympísku þríþrautinni sem haldin var í Vallarhverfinu í Hafnarfirði í morgun.Að venju var mikill handagangur í öskjunni þegar komið var upp úr lauginni en Ólafur Marteinsson sem æfir hjólreiðar með Hjólamönnum var fyrstur allra keppenda að klára sundsprettinn.Næstu menn á eftir voru þeir Steinn Jóhannsson og Torben Gregersen.Það fór svo að það voru þessir þrír sem röðuðu sér á verðlaunapall en Torben kom fyrstur í mark á tímanum 2:04:37, Óli tók 2. sætið rúmum 3 mínútum þar á eftir og Steinn lenti í 3. sætinu einungi 45 sekúndum á eftir Óla.Hákon Hrafn Sigurðsson úr HFR sem hefur hjólað gríðarlega vel í götuhjólamótunum í vor var á meðal keppenda.Hann lenti því miður í basli með hjólið sitt og tapaði miklum tíma á þeim legg en endaði engu að síður í 6. sæti á tímanum 2:22:09. Í kvennaflokki sigraði Hulda Björk Ásgeirsdóttir á tímanum 2:34:23, í öðru sæti var Eva Margrét Einarsdóttir á tímanum. 2:40:16 og í þriðja sæti um 10 mínútum á eftir Evu var Sigurbjörg Eðvarðsdótti