|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Landskeppnin 2010 - úrslit
mánudagur, júní 21

Síðasti leggurinn í Landskeppninni 2010 fór fram Grafningnum á Þingvöllum í gær við fínar aðstæður.. Eftir frekan flatan legg á laugardeginum bauð Grafningurinn upp á fullt af brekkum með endamarkið í miðri Nesjavallabrekku.Hjólaðir voru þrjár 22 km pulsur í Grafningnum auk Nesjavallabrekkunnar, eða samtals um 65 km með heildarhækkun upp á rúmlega 1.100 metra, þar af Nesjavallabrekkan um 150 metrar með meðalhalla um 9 %.


24 hjólarar lögðu af stað, þar af 2 í kvennaflokki. Fyrsti hringur fór frekar rólega af stað, nokkrar tilraunir voru gerðar til að slíta hópinn í sundur en margir voru viljugir til að loka. Það var ekki fyrr en á 2. hring sem draga fór til tíðinda en þá brúaði Gunnlaugur yfir til Miro og Andrass sem voru rétt á undan aðalhópnum. Í kjölfarið fór svo Hafsteinn Ægir einnig yfir án þess að neinn í aðalhópnum brygðist við. Andrass datt fljótlega aftur úr þessum þrem en Gunnlaugur, Hafsteinn Ægir og Miro hjóluðu meira og minna saman að Nesjavallabrekkunni þar sem Hafsteinn Ægir tók svo forystu upp brekkuna og kom í mark sem öruggur sigurvegari á tímanum 2:02:49, Gunnlaugur hafnaði í 2. sæti á tímanum 2:03:32 og tæpri mínútu þar á eftir kom Miro í mark og tryggði sér bronsið. Á eftir þessum þremur komu svo Davíð Þór, Gunnar Dahl, Pétur Þór Árni Már, Hákon Hrafn, Andrass og Sigurgeir en þeir höfðu slitið sig frá aðalhópnum í “þriggja þrepa” brekkunni á 2. hring og hjóluðu síðasta hringinn saman.Brekkan fræga sá svo um að slíta þennan hóp í sundur fyrir markið en Davíð Þór vann sprettinn um 4. sætið.


Í kvennaflokki sigraði Eva Margrét Einarsdóttir örugglega á tímanum 2:34:13 og í 2. sæti hafnaði Margrét Pálsdóttir.


Í heildarkeppni einstaklinga í karlaflokki sigraði Hafsteinn Ægir nokkuð örugglega á tímanum 4:21:30, í öðru sæti hafnaði Pétur Þór Ragnarsson 4:27:25 og í þriðja sæti, einungis 22 sekúndum á eftir Pétri var Gunnar Dahl-Olsen.


Í heildarkeppni einstaklinga í kvennaflokki sigraði Eva Margrét Einarsdóttir á tímanum 5:27:38.


Í liðakeppninni sigraði Hjólreiðafélag Reykjavíkur með miklum yfirburðum, í 2. sæti voru Hjólamenn og rétt á eftir í 3. sæti voru Færeyingarnir.


Alls tóku 35 keppendur þátt í Landskeppninni í ár og þar af voru 15 sem kepptu alla 3 dagana. Frábær stemming var í keppninni og er alltaf jafngaman að fá vini okkar frá Færeyjum til landsins og við hlökkum til næstu heimsóknar.


Hjólamenn þakka eftirfarandi aðilum fyrir veittan stuðning og hjálp:



Emil Þór Guðmundsson

David James Robertson

Sigurður Óskar Pálsson

Kria Cycles

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum

Lögreglan á Selfossi

Gunnar Carlsen

Daníel Smári Guðmundsson

Rémi Spillaert

Haukur Eggertsson

Hjólreiðanefnd ÍSÍ

Hákon Hrafn Sigurðsson

Kristján Jónasson

Innnes



Myndir frá verðlaunaafhendingu á laugardag og sunnudag

Heildarúrslit
Dagur 3
Dagur 2
Dagur 1

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter