|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Landskeppnin 18.-20 júní - uppfært
miðvikudagur, júní 9

Hjólamenn halda landskeppni milli Íslands og Færeyja 18. til 20. júní nk. Keppnin samanstendur af 3 dagleiðum. Til að taka þátt í heildarkeppninni verða keppendur að keppa alla 3 dagana en einnig er hægt að keppa á stökum dagleiðum.

Dagleiðir
Föstudagur 18. júní kl 19:30
Tímataka. Krýsuvíkurvegur, 20 km.
Startað verður til suðurs frá Bláfjallaafleggjara og snúið við á keilu, hjólað norður að hringtorgi, snúið við í suður og hjólað aftur upp að keilu, snúið við og hjólað í mark. Samtals 1 1/2 hringur.

Laugardagur 19. júní kl 10.00
Hópstart. Þingvellir - Grímsnes - Þingvellir, 68 km.
Startað og endað verður við Þjónustumiðstöðina á Þingvöllum. Þingvallavegur hjólaður í suður í átt að Grímsnesi þar sem snúið verður við á keilu í Þrastarskógi eftir 34 km og sama leið hjóluð til baka.
Það eru vinsamleg tilmæli frá Þjóðgarðsverði að keppendur leggi bílum sínum á bílastæðinu hjá tjaldsvæðinu við Fögrubrekku en ekki hjá Þjónustumiðstöðinni.

Sunnudagur 20. júní kl. 10
Hópstart. Grafningur, 65 km.
Startað og endað verður í miðri Nesjavallabrekkuog hjólaðar 3 “pulsur” í Grafningnum. Tímataka hefst í Nesjavallabrekku en keppnisstjóri fer á undan keppendum niður að gatnamótum við Grafningsveg þar sem keppni mun hefjast.

Liðakeppni
6 manna lið, þrír bestu tímar á hverjum legg telja. Leyfilegt að hafa færri en 6 í liði, þó aldrei færri en 3. Það lið sem vinnur fær farandbikar keppninnar til varðveislu í eitt ár.
Vinsamlegast skráið lið til keppni með því að senda tölvupóst á sigurgeir(hjá)tono.is.

Flokkar
Opinn flokkur karla og kvenna.
Fyrir hverja dagleið sem og heildarkeppnina verða veitt verðlaun í opnum flokki karla og kvenna.
Karla og kvennaflokkur hjóla sömu vegalengdir alla 3 leggina.

Skráning
Keppnisgjöld eru 1.500 kr. í forskráningu fyrir hvern legg en 4.000 kr. ef greitt er fyrir alla þrjá leggina. Annars 2.500 kr. á legg.

Forskráningu lýkur kl. 18:00 fimmtudaginn 17. júní.
Það er til mikils hagræðis fyrir keppnisstjórn að keppendur skrái sig sem fyrst til leiks.

Bankaupplýsingar:
Reikn nr. 0101-26-705815
Kt. 580105-0840
Vinsamlegast sendið greiðslukvittun á sigurgeir(hjá)tono.is

Keppendur eru á eigin ábyrgð í Landskeppninni. Hjálmaskylda er í öllum keppnum á vegum Hjólamanna. Keppendur eru minntir á að virða almennar umferðarreglur.

Facebook síða keppninnar

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter