Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Landskeppni 2010
föstudagur, júní 18
Mynd fengin af Facebook.com
Pétur Þór Ragnarsson sigraði glæsilega á fyrsta legg íslandshjólreiðanna sem fram fór á Krísuvíkurvegi í kvöld. Hann kom í mark 6 sek á undan Hafsteini Ægi Geirssyni í öðru sæti og 19 á undan Gunnlaugi Jónassyni í þriðja. Pétur mætti mjög ákveðinn til leiks á glænnýju hjóli sem var tilbúið rétt fyrir keppnina. Hann leiðir þar með Íslandshjólreiðarnar með 6 sek. Í kvennaflokki sigraði Eva Margrét Einarsdóttir með yfirburðum, rúmum tveim mínútum á undan Margréti Pálsdóttur. Margrét Björk Tryggvadóttir varð þriðja
Keppnin í ár er jafnframt landskeppni milli Íslands og Færeyja og er sú keppni nú haldin í 8. sinn. +Fimm Færeyingar eru mættir til leiks en þá vantar tvo af sínum sterkustu mönnum í liðið og eru nú í þriðja sæti í liðakeppninni í eftir liðum HFR í fyrsta sæti og liði Hjólamanna sem er í öðru sæti.