|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Þingvellir-Grímsnes-Þingvellir
laugardagur, júní 19
Mynd: Hafsteinn í góðum spretti, fengin af Facebook.com

Fengið frá Hákoni Hrafni sem lýsir keppninni vel á síðu HFR:
Í dag nokkuð flöt keppni frá þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum suður í Grímsnes þar sem snúið var við á keilu eftir 34km og hjólað til baka. Í keppninni kom fram nokkur liðataktík og sumum keppendum var "leyft" að fara og öðrum ekki og það kom oft fyrir að einn eða tveir keppendur náðu 30-60 sek forskoti á aðalhópinn sem var svo étið upp af honum. Á keilunni voru Árni Már og Gunnar Dahl-Olsen saman fremst með mínútu forskot á hópinn og Hafsteinn var ca 30 sek á eftir þeim (á undan hópnum). Hafsteinn náði þeim tveimur og Gunnar fór svo með honum en Árni dróst aftur úr og datt í næsta hóp fyrir aftan (Pétur Þór, Davíð og Miro). Hafsteinn vann svo keppnina á góðum spretti í lokin á tímanum 1:49:33, Gunnar Dahl varð 2 sek á eftir og Davíð vann sprettinn í næsta hóp og kom þriðji í mark rúmlega mínútu á eftir Hafsteini. Í kvennaflokki varð Margét Páls fyrir því óláni að sprengja dekk og Eva Margrét kláraði ein á tímanum 2:17:09 en kvennaflokkur fór sömu vegalengd og karlaflokku.
Lið HFR náði tæplega 20 mínútna forskoti eftir daginn í dag en aðeins munar rúmlega mínútu á Hjólamönnum og Færeyingum.
Í einstaklingskeppninni er keppnin spennandi. Hafsteinn leiðir á tímanum 2:18:41. Pétur Þór er 72 sek á eftir honum í 2. sæti og Gunnar Dahl-Olsen er 3. einungis 23 sek á eftir Pétri. Á morgun er svo dauða-brekku keppni sem endar í miðri Nesjavallarbrekku. Þar getur allt gerst.


Heildarúrslit
Dagur 2
Dagur 1

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter