Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Liðatímakeppni 25. maí
laugardagur, maí 8
Hjólamenn halda 20 km liðatímakeppni á Krísuvíkurvegi þriðjudaginn 25. maí.
Keppt verður milli 3.-4. manna liða og telur tími 3. manns í mark. Liðin verða ræst út með þriggja mínútna millibili við Bláfjallaafleggjara í norður og hjólaður einn og hálfur hringur á sömu braut og hjóluð var í ÍM í tímakeppni síðasta sumar. Keppendum verður ekki haldið við ræsingu eins og venja er.
Hjólamenn vona að sem flest lið mæti til leiks og vonast til að Þrír, Bjartur, HMS, Hjólakonur og HFR mæti með fleiri en eitt lið hver.
Keppnisgjald er krónur 2000 á hvert lið sem greiðist inn á reikning nr. 0101-26-705815 kt. 580105-0840 Sendið staðfestingu á sigurgeir(hjá)tono.is fyrir sunnudagskvöldið 23.maí
Sigurvegurarnir fá veglegan farandbikar til varðveislu í eitt ár