
Önnur götuhjólakeppni sumarsins fer fram miðvikudagskvöldið 12. maí, kl 20:00 á iðnaðarsvæðinu á Völlunum í Hafnarfirði (bílastæði við Héðinn hf Gjáhellu 4). Hringurinn er 2km og hjólaðir verða 10-15 hringir rangsælis eftir flokkum. Fyrirkomulagið á keppninni er þannig að keppandi dettur úr keppni þegar fyrsti maður í brautinni hefur hringað viðkomandi. Ef fremsti keppandi hringar nokkra keppendur í einu þá fá þeir allir sama sæti í keppninni og þann tíma sem fyrsti maður hefur eftir að hann klárar þann hring. Þetta þýðir að keppendur sem verða hringaðir mega ekki vera virkir í keppninni eftir að þeir hafa verið hringaðir (mega ekki kljúfa vind eða elta fremsta mann). Fremsti keppandi í karlaflokki slær ekki út keppendur í unglingaflokki eða kvennaflokki. Keppt verður í eftirfarandi flokkum, bæði í karla og kvennaflokki: 15-16 ára 17-18 ára Meistaraflokkur H-30 H-40 H-50 Unglingaflokkar og kvennaflokkar hjóla 10 hringi og karlaflokkar 15 hringi. Mótstjóri áskilur sér rétt til að ræsa konur út á undan og klára þeirra keppni ef þátttaka gefur tilefni til. Skráning fer fram á http://hjolanefnd.isi.is Forskráningargjald er kr. 1.500. Eftir kl. 16 þriðjudaginn 11. maí hækkar skráningargjaldið í 2.500 kr. Keppnisgjald greiðist inn á reikning hjólreiðanefndar ÍSÍ 545 - 26 - 051470, kt 440505-1470 Vinsamlegast senda tölvupóst á hjolreidanefnd@gmail.com úr heimabanka til staðfestingar greiðslu. Annað: Hjólreiðanefnd ÍSÍ áskilur sér rétt til að veita ekki verðlaun í þeim flokkum sem enginn keppandi hefur skráð sig til leiks þegar forskráningu lýkur. Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni. Hjálmaskylda er í keppninni. Eingöngu hefðbundin götuhjól eru leyfð í kepninni.
|