 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
Hafnarfjarðarkriterium - úrslit |
fimmtudagur, maí 13 |
 |
 |
 |
Frétt tekin af www.hfr.is
Götuhjólamót númer 2 fór fram í kvöld (miðvikudagskvöld) á kriteriumbrautinni á Völlunum. 22 Keppendur voru mættir til leiks við frekar erfiðar aðstæður en hitinn var einungis um 5 gráður og nokkuð mikill vindur, norð-vestan átt 7-10m/s. Það var því mótvindur á langa kafla brautarinnar en á honum hefur alltaf verið meðvindur þegar keppt hefur verið á brautinni. Hópurinn hjólaði saman fyrsta hring en sá hringur var varla búinn þegar gefið var verulega í. Á 4. hring náðu Hafsteinn, Pétur og Davíð forskoti en í næsta hóp fyrir aftan voru Gunnlaugur, Hákon, Árni Már og Hlöðver. Sú staða hélst óbreytt næstu hringi. Á meðan kláraði Emil Tumi unglingaflokkinn (20km) á góðum tíma, 39:20. Í kvennaflokki náði Eva Margrét forystunni en Steffi fylgdi henni nokkra hringi en varð svo að gefa eftir. Nýliðinn Margrét Pálsdóttir hjólaði einnig mjög vel og fór að draga á þær eftir nokkra hringi og náði Steffi og endaði ekki nema 10 sek á eftir Evu sem sigraði á frábærum tíma, 41:42. Á þeim tímapunkti voru bara þrír hópar eftir í karlaflokki en fyrsti hópur hægði mjög á sér fyrir síðasta hring. Þá var forysta hópsins um 90 sek á Gunnlaug, Hákon og Árna en Gunnlaugur náði þeim fyrir síðstu beygju áður en endaspretturinn hófst. Davíð (SCOTT) vann þann sprett og var sjónarmun á undan Hafsteini (TREK). Pétur Þór (TREK) var svo einu sekundubroti á eftir þeim og Gulli sekúndu þar á eftir. Sigurtíminn var 45:30,0 sem er 2,5 mínútum betri tími en í fyrra þrátt fyrir verri aðstæður. Greinilegt að hjólreiðafólk er í gríðarlega góðu formi strax snemmsumars.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |