|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Skírdagsæfing
föstudagur, apríl 2


Hjólamenn lögðu af stað kl. 7:30 á skírdagsmorgun í rjómablíðu en 10 stiga frosti í áttina að Þingvöllum. Heldur bætti í vindinn þegar komið var upp á Mosfellsheiði en aftur á móti var sólin byrjuð að hlýja með morgungeislunum og hitinn skriðinn upp í frostmark. Dálítið vindbarnir Hjólamenn voru komnir í Þjónustumiðstöðina eftir um 2 1/2 tíma hjólerí. Þar var að venju einni pylsu rennt niður og páskaeggi gerð góð skil sem Gunnlaugur hafði verið svo forsjáll að taka með. Málshátturinn var: Þá koma dagar og þá koma ráð. Þetta eru greinilega skilaboð frá æðri máttarvöldum að vera ekkert að plana hlutina með of miklum fyrirvara! Með vindinn í bakið rúlluðum við létt til baka. Góður endir á góðum túr!

Næsta æfing Hjólmanna yfir páskana verður á morgun, laugardag, og veður að venju lagt af stað kl. 7:30 frá Sprengisandi í götuhjólum.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter