Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Cadel Evans vinnur La Fleche Wallonne
miðvikudagur, apríl 21
Heimsmeistarinn í götuhjólreiðum, Ástralinn Cadel Evans sigraði í La Fleche Wallonne sem fram fór í Belgíu í dag, miðvikudag. Hann beið þolmóður eftir rétta augnablikinu áður enn hann gaf í um 100m frá endamörkunum efst á "veggnum", Le Mur du Huy. Hann snaraðist þar með fram úr Alberto Contador sem er af flestum álitinn vera besti klifrari í heimi sem hafði stungið af nokkru neðar á veggnum. En þó Múrinn sé brattur er hann ekki "nema" 1,3 km langur, sem er ekkert samanborið við fjöllin í Ölpunum sem Contador flýgur upp í Túrnum. Cadel sem hefur nokkrum sinnum verið nálægt því að sigra La Fleche Wallonne, notaði reynslu sína til að tímasetja sprettinn fullkomlega.
Það er gaman að bera þessa "brekku" saman við vegginn í Hvalfirði sem verður á brautinni í Íslandsmótinu í sumar og neðsta hluta Nesjavallabrekkunnar sem Íslandshjólreiðarnar enda í. Veggurinn okkar í Hvalfirði er um 500 metrar langur með 7% meðalhalla en hallinn er um 11 % þar sem hann er mestur. Neðsti hluti Nesjavallabrekkunnar er hinsvegar 1,1 km á lengd og hallar að meðaltali 11% en brattinn fer upp í 17% þar sem hún er bröttust skv. pólarmælingum.