Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Páskaæfingar Hjólamanna
miðvikudagur, mars 31
Frá páskaæfingu í fyrra.
Hjólamenn ætla að taka 3 langar samæfingar á næstu dögum. Stefnt er að því að fara á götuhjólum nema það verði hált á stígunum, þá förum við á fjallörum. Við ætlum að fara fimmtudags-, laugardags- og mánudagsmorgun frá Sprengisandi klukkan 7.30. Oft höfum við farið til Þingvalla á páskaæfingum en síðustu daga hefur blásið hressilega á heiðinni og ef svo verður áfram, höldum við okkur á láglendi.
Við hvetjum menn til að vera vel klædda og taka jafnvel með föt til vara, td. skíðageraugu og álíka, enda er mun meiri vindkæling á götuhjóli en fjallahjóli.
Sunnudagsæfing Hjólamanna fellur hinsvegar niður að þessu sinni.