|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Aðalfundur Hjólamanna
þriðjudagur, desember 15

Aðalfundur Hjólamanna fór fram í Laugum mánudaginn 14. desember. Ársreikningar fyrir 2009 voru samþykktir og formaður Hjólamanna stiklaði á stóru yfir starfsemi ársins. Þar bar helst til tíðinda að Hjólamenn stóðu fyrir komu Beth Mason hjólreiðaþjálfara og "bike-fit" sérfræðingi til landsins fyrripart marsmánuður. Alls nýttu yfir 20 hjólreiðamenn sér þjónustu hennar og var almennt gerður góður rómur að komu hennar. Auk þessa héldu Hjólamenn 4 mót og báru hitann og þungann af Landskeppninni sem haldin var í samvinnu við HFR í ágúst. Einnig lögðust Hjólamenn í útrás en "Team-Hjólamenn" tók 3. sætið í liðakeppninni í Færeyjatúrnum í júlí.

Ný stjórn Hjólamanna var kosin en hana skipa Gunnlaugur Jónasson, formaður, Bertel Ingi Arnfinnsson ritari og Sigurgeir Agnarsson gjaldkeri. Talsverðar umræður spunnust um keppnisdagskránna fyrir 2010 og vænta Hjólamenn góðs samstarfs við Hjólreiðanefnd ÍSÍ og HFR um endanlega útgáfu hennar.

Hjólamenn hafa í hyggju að standa fyrir "Century Ride" að bandarískri fyrirmynd þar sem hjólaðir verða um 160 km, eða ígildi 100 mílna, hringin í kring um Snæfellsnes. Væntanlega verður keppnin haldin í enda júní eða byrjun júlí en nákvæm tímasetning verður í samráði við Hjólreiðanefnd ÍSÍ. Um leið og endanlega keppnisdagskrá liggur fyrir, sem vonandi verður í byrjun janúar, verður keppnin formlega auglýst með nánari upplýsingum.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter