Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Tjarnarspretturinn og Reykjavik DownTownHill
miðvikudagur, september 16
Tjarnarspretturinn 19. sept 2009, klukkan 14:30
Núna er komið að því að bestu götuhjólreiðamenn landsins leiða saman hjólhesta sína í æsilegustu og skemmtilegustu götuhjólakeppni ársins. Fyrirkomulag keppninnar er þannig að skipt er niður í karla- og kvennaflokka og hjóla karlar 15 hringi í kringum Tjörnina á meðan konur hjóla 10 hringi. Keppnin er einstaklega hröð og spennandi því beygjur eru krappar og hægt að ná miklum hraða og voru hröðustu keppendur í fyrra á nærri 40 km. meðalhraða í brautinni með 65km/klst hámarkshraða niður Tjarnargötu. Götunum í kringum Tjörnina er lokað og fá því keppendur að njóta sín í brautinni og áhorfendur að njóta frábærrar skemmtunar. Hanna Birna borgarstjóri ræsir keppnina við Ráðhúsið klukkan 14:30 á laugardaginn en húsið opnar klukkan 13:00 og skráning fer fram klukkan 13:30. Þátttaka í keppninni er í boði Samgönguviku og þátttaka því ókeypis. Við viljum því hvetja alla götuhjólamenn að taka þátt. Í Ráðhúsinu verður einstaklega fjölskylduvæn dagskrá færustu Freestyle hjólasnillingar landsins verða með hjólasirkus inn í Ráðhúsinu strax að keppni lokinni og fram að verðlaunaafhendingu.
Reykjavík DownTownHill klukkan 16:00
Eftir verðlaunaafhendingu klukkan 16:00 geta gestir svo skellt sér á enn einn viðburð Hjólreiðafélagsins þennan dag þar sem mest vaxandi hjólaíþrótt í heiminum verður í forsvari eða Reykjavík DownTown Hill þar sem snarklikkaðir ofurhugar keppast við að komast á sem stystum tíma niður brekkur og tröppur. Í svona keppni skiptir máli hver er hugaðastur og hraðastur og því mikið sjónarspil í gangi. Startað verður fyrir utan hús Iðnaðarmannafélag Reykjavíkur við Hallveigarstíg og liggur svo leið einhverja smá króka hjá húsinu, síðan niður Amtmannsstíg í átt að MR, tekin beygja inn á bílastæði nemenda MR. Og hjólað bak fyrir skólann og kring um hann vinstramegin og svo endar leiðin niður tröppurnar hjá MR. Eins og í Tjarnarsprettinum verður ekkert keppnisgjald þar sem keppnin er í boði Samgönguviku Evrópu og Reykjavíkurborgar.
Keppendur í Reykjavík DownTownHill eiga að vera græjaðir eins og fyrir önnur Downhill mót. Fullfacehjálmur, brynja, hné, legg og olnbogahlífar.
Hjóladagur Fjölskyldunnar & Tjarnarspretturinn.
11:30 frá Thorsplani í Hafnarfirði Suðurlest: 12:10 frá Sjálandsskóla í Garðabæ 12:50 frá Gerðasafni í Kópavogi Austurlest: 11:30 frá Miðbæjartorginu í Mosfellsbæ 12:00 frá Hallsteinshöfða í Grafarvogi 12:30 frá Minjasafni Orkuveitunnar í Elliðaárdal Vesturlest: 12:40 frá Seltjarnarneslaug 13:00 frá Ægisíðu 13:45 Allir hjóla saman frá Nauthólsvík að Ráðhúsi Reykjavíkur 14:30 Tjarnarsprettinn á götuhjólum ræstur 15:00 Hjólasirkus Freestyle snillinga í Ráðhúsinu í Reykjavík 15:30 Verðlaunaafhending Tjarnarsprettsins 16:00 Reykjavíkur DownTownHill 2 frá Hallveigarstíg niður fyrir MR