|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Íslandsmeistaramót í götuhjólreiðum - úrslit
þriðjudagur, september 1

Íslandsmeistarmótið í götuhjólreiðum fór fram við frábærar aðstæður á Þingvöllum á sunnudaginn. Því miður var þáttakan í öfugu hlutfalli við góða veðrið og er það umhugsunarefni að eitt fámennasta mót ársins í götuhjólreiðum sé sjálft íslandsmeistaramótið.


Lagt var af stað frá Nesjavallavirkjun og hjólað sem leið liggur Grafninginn og inn í þjóðgarðinn þar sem karlaflokkur hjólaði 3 “klassíska” hringi í þjóðgarðinum og til baka. Kvennaflokkur hjólaði 1 hring í þjóðgarðinum og svo sem leið lá til baka inn á Nesjavelli.


Í karlaflokki þróaðist keppnin á mjög skemmtilegan máta. Langstærsti hluti hópsins hélt saman allt þangað til í síðustu brekkunum fyrir endamarkið þar sem Dabbi og Haffi sprengdu allt í tætlur. Niðurstaðan var sú að Haffi kom í mark um tveim hjólallengdum á undan Dabba. Rúmum 20 sekúndum síðar kom Pálmar Kristmundsson í mark og tryggði sér 3. sætið.


Í kvennaflokki voru 4 þáttakendur. Eva Margrét Einarsdóttir kom fyrst í mark og tryggði sér þar með íslandsmeistaratitilinn, í öðru sæti varð Bryndís Þorsteinsdóttir og í því þriðja Sigurbjörg Eðvarðsdóttir. Lára Bryndís hætti keppni.


Myndir sem Sigurgeir tók


Nánari umfjöllun og heildarúrslit á vefsvæði HFR

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter