|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Landskeppnin 2009
mánudagur, ágúst 17
Hjólamenn og Hjólreiðafélag Reykjavíkur í samráði við Hjólreiðanefnd ÍSÍ halda landskeppni milli Íslands og Færeyja 21. og 22. ágúst nk.
Vegna óska frá Færeyjum hefur keppnin verið stytt um einn dag. Einn leggur verður hjólaður á föstudeginum og tveir leggir á laugardeginum. Með þessu móti geta Færeyingarnir notið Menningarnætur og svo er stefnt að skoðunarferð á sunnudag með rútu sem allir eru velkomnir í.


Keppnin

Föstudagur kl 20.00 Tímakeppni á Krísuvíkurvegi, 20 km.

Laugardagur kl 10.00 Hvalfjörður, 3 hringir, 60 km, konur fara sömu vegalengd

Laugardagur kl 17:00 Kriterium í Vallarhverfi, 12 hringir, ca 40 mínútur.


Liðakeppni

6 manna lið, þrír bestu tímar á hverjum legg telja. Endanlega ákveðið þegar ljóst er hve margir koma frá Færeyjum (væntanlega 6). Leyfilegt að hafa færri en 6 í liði, þó aldrei færri en 3.


Flokkar

Karla og kvennaflokkur. Verðlaunað fyrir 1. unglinga karla og kvenna samanlagt.


Keppnisgjöld

Keppnisgjöld eru 1.500 kr. í forskráningu fyrir hvern legg en 4.000 kr. ef greitt er fyrir alla þrjá leggina. Annars 2.000 kr. á legg.

Forskráningu lýkur kl. 18.00 á fimmtudag, engar undantekningar!

Það er til mikils hagræðis fyrir keppnisstjórn að keppendur skrái sig sem fyrst til leiks.

Bankaupplýsingar:

Reikn nr. 0101-26-705815

Kt. 580105-0840

Vinsamlegast sendið greiðslukvittun á sigurgeir@tono.is


Keppendur eru á eigin ábyrgð í Landskeppninni. Hjálmaskylda er í öllum keppnum á vegum Hjólamanna og HFR.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter