Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Landskeppnin 2009 - úrslit
sunnudagur, ágúst 23
Þriðji og síðasti leggurinn í Landskeppninni fór fram í gær kl. 17 í Vallarhverfi í Hafnarfirði þar sem hjólaðir voru 12 hringir (24 km) á kriterium braut. Rok gerði keppendum nokkuð erfitt fyrir en á móti kom að sólin lét sjá sig ólíkt því sem var fyrr um morguninn í Hvalfirði.
Færeyingarnir féllu á eigin bragði þegar bæði Torkil og Bogi sprengdu með stuttu millibili. Ástæðan var að þeir hjóluðu alveg úti í kanti þar sem mikil möl var til að ekkert skjól væri af þeim fyrir aðra keppendur. Má þar með segja að sigur Íslendinga í liðakeppninni hafi verið gulltryggður og ólíkegt að staða efstu manna í einstaklingskeppninni myndi breytast. Síðustu hringirnir voru því hjólaðir frekar rólega og endaði keppnin í miklum endaspretti þar sem Gunnar Dahl fór með sigur af hólmi. Hjóllengd á eftir var Davíð Þór Sigurðsson og í þriðja sæti kom svo Hafsteinn Ægir Geirsson. Í kvennaflokki sigraði Súsanna Skylv örugglega og í öðru sæti varð Bryndís Þorsteinsdóttir.
Í heildarkeppninni sigraði Hafsteinn Ægir Geirsson, í öðru sæti kom Gunnlaugur Jónasson og í þriðja Gunnar Dahl Olsen. Í kvennaflokki var Súsanna Skylv sú eina sem kláraði alla þrjá leggina og tók gullið heim.
"A landslið" Íslands sigraði með yfirburðum, í öðru sæti kom svo "B landsliðið" sléttum 14 mínútum á eftir og svo komu Færeyingarnir tæpri mínútu þar á eftir.
Hjólamenn þakka gott samstarf við HFR og Hjólreiðanefnd ÍSÍ við að halda keppnina og einnig öllum sem komu að undirbúningi og framkvæmd keppninnar. Innnes fær sérstakar þakkir fyrir að gefa hina ómissandi Capry Sonne og Corny!