|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Íslandsmeistaramót í götuhjólreiðum - UPPFÆRT
sunnudagur, ágúst 23
Forskráningu er lokið. Skráningargjald er nú 2.500 kr.

Hjólamenn munu bjóða upp á grillaðar pylsur og drykki eftir keppnina á sunnudaginn.

Kvennaflokki verður startað 2 mínútum á eftir karlaflokki.

- - - - - - - -

Hjólamenn halda Íslandsmeistaramótið í götuhjólreiðum sem er jafnframt 6. bikar sunnudaginn 30. ágúst kl. 10.

Lýsing leiðar:
Startað verður við afleggjarann til Nesjavallavirkjunnar og hjólað til Þingvalla þar sem 3 hringir verða hjólaðir í þjóðgarðinum (réttsælis) og svo sama leið hjóluð til baka. Samtals 100 km. Kvennaflokkur hjólar til Þingvalla og 1 hring í þjóðgarðinum og tilbaka til Nesjavalla. Samtals 64 km.

Flokkar:
Keppt verður í eftirfarandi flokkum bæði í karla og kvennaflokki
15-16 ára
17-18 ára
Meistaraflokkur
H-30
H-40

Keppnisgjöld:
Forskráningargjald er kr. 1.500. Eftir kl. 13 föstudaginn 28. ágúst hækkar skráningargjald upp í 2.500 kr. Vinsamlegast senda tölvupóst á sigurgeir(hjá)tono.is með nafni kennitölu og flokki ásamt því að senda greiðslukvittun úr heimabanka.
Bankaupplýsingar
Reikningur nr. 0101-26-705815
kt. 580105-0840

Annað:
Hjólamenn áskilja sér rétt til að veita ekki verðlaun í þeim flokkum sem enginn keppandi hefur skráð sig til leiks þegar forskráningu lýkur.

Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppnum á vegum Hjólamanna. Hjálmaskylda er í öllum keppnum á vegum Hjólamanna. Keppendur eru minntir á að virða almennar umferðarreglur.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter