|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Statoil kring Foroyjar - 2. dagur
fimmtudagur, júlí 16

Í dag var hjólaður 2. leggurinn í SKF frá Þórshöfn yfir í Austurey, eða alls um 115 km. Veðrið var mjög fínt, léttskýjað og smá andvari.

Þessi dagleið er töluvert breytt frá fyrri árum og hafa Færeyingar í ár reynt að hafa hana eins flata og mögulegt er. Þó svo að hún sé flöt á færeyskan mælikvarða að þá var heildarklifur upp á rúma 1100 metra sem þykir töluvert mikið á fróni. Þessi breyting á dagleiðinni er til mikilla bóta og gerir þennan legg svona snemma í keppninni ekki eins afgerendi og hann hefur verið.

Eftir rúma 40 km hjól fór fyrst að draga til tíðinda þegar kom að langri og brattri brekku upp að Austureyjargöngunum. Þar slitu tíu hjólarar sig frá hópnum og voru allir Íslendingarnir þar á meðal. Þegar í göngin var komið var slakað töluvert á tempóinu auk þess sem mótvindur var og brátt var allur hópurinn kominn saman á ný. Í stuttu máli má segja að þessi hópur hafi meira og minna haldið sig saman í mark. Það eina verulega markverða sem gerðist var að Gunnar Dahl-Olsen fór í um 50 km langt sóló "break" sem strákarnir í HFR þurftu að hafa töluvert fyrir að loka, enda Gunnar í GTG liðinu sem er rétt á eftir HFR-ingunum í liðakeppninni. Tæpum 20 km frá marki kom allur hópurinn saman og hélst sú staða þar til um 1500 metrum frá markinu þegar Haffi tók feykimikinn sprett sem færði honum fyrsta sætið. Torkil kom svo sjónarmun á eftir og Daninn Troels tók þriðja sætið. Þessir þrír komu 3 sekúnum á undan aðal hópnum í mark þar sem allir Íslendingarnir voru. Staða efstu manna breyttist því sáralítið í heildarkeppninni. Troels leiðir, Torkil er 8 sekúndum á eftir og Haffi 10 sekúndum.

Myndir

Úrslit

Myndir sem Albert tók

Á morgun verður hjóluð 27 km tímatökukeppni í Sandey sem væntanlega á eftir að hrista vel upp í heildarkeppninni.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter