|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Statoil kring Foreyjar - 1. dagur
miðvikudagur, júlí 15

Í dag fór fram fyrsti leggurinn í Statoil kring Foreyjar 2009 þar sem hjólaður var 8 km prólóg við mjög góðar aðstæður í Klakksvík. 7 íslenskir hjólarar taka þátt að þessu sinni og hafa, að því er greinarhöfundur telur sig best vita, aldrei verið fleiri. Samtals eru 26 keppendur skráðir til leiks, þar af 23 í opnum flokki karla.



Íslensku keppendurnir áttu fínan dag og má m.a. nefna að af 8 fyrstu keppendum voru 5 Íslendingar. Annars voru helstu úrslit þau að Daninn Troels Toftager Nielsen sýndi geipigott hjólerí og tók 1. sætið á tímanum 10:22. Torkil Veyhe kom 2. í mark á tímanum 10:30 og einungis 2 sekúnum á eftir honum var Hafsteinn Ægir Geirsson á tímanum 10:32 og nældi sér þar með í bronsið. Til gamans má geta að fyrstu 6 menn í dag fóru allir undir gamla brautarmetinu sem var rétt yfir 11 mínútum.

Í liðakeppninni komustu 2 íslensk lið á pall. Team HFR tók fyrsta sætið, í öðru sæti var Team GTG og í þriðja sæti kom svo Team Hjólamenn.

Nánari úrslit úr einstaklings- og liðakeppninni má sjá hér

Myndir

Sjá einnig umfjöllun á vefsvæði HFR


Mikil stemming er í íslenska hópnum og bíða menn spenntir eftir morgundeginum þar sem hjólaðir verða um 115 km um Straumey og Austurey.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter