|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Guðmundarlundur - úrslit
miðvikudagur, júlí 1



24 keppendur voru mættir til leiks í Guðmundarlundi í kvöld við prýðis aðstæður. Strax eftir ræsingu þegar hjólað var út á melana fyrir utan lundinn tók Hafsteinn Ægir Geirsson afgerandi forystu sem hann hélt allt til enda og vann glæsilega á tímanum 56:51. Var hann eini keppandinn sem hjólaði alla 12 hringina. Í öðru sæti varð svo Hákon Hrafn Sigurðsson á tímanum 57:04 og þriðji Helgi Berg Friðþjófsson á tímanum 1:00:47, en báðir hjóluðu þeir 11 hringi. Það bar helst til tíðinda í karlaflokki að Hafsteinn Ægir og Pétur Þór hlutu báðir slæmar byltur. Hafsteinn Ægir nefbrotnaði en hélt keppni engu að síður áfram. Pétur Þór ákvað hins vegar að draga sig í hlé.

Í kvennaflokki var keppnin allhörð milli Láru Bryndísar Eggertsdóttur og Evu Margrétar Einarsdóttur. Lára Bryndís tók forystuna strax á fyrsta hring og lét hana aldrei af hendi og sigraði á tímanum 43:47 og kom Eva Margrét í mark tæpum 2 mínútum síðar.

Í B-flokki karla var einnig hörð samkeppni milli Margeirs Jóhannessonar og Kristins Jóhannessonar. Ástvaldur kom í mark á tímanum 50:14 og Margeir einungis tæpri mínútu síðar.

Hjólamenn þakka keppendum fyrir skemmtilega keppni og öllum öðrum sem lögðu hönd á plóginn við undirbúning og aðstoð við framkvæmd keppninnar.

Myndir sem Elvar tók.
Myndir sem Albert tók.
Úrslit

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter