|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Færeyjar 4. dagleið
laugardagur, júlí 18
Mynd sem Albert tók af Árna Má í dag.

Eftir miklar sviptingar á 4. dagleið er færeyingurinn Torkil Veyhe kominn með afgerandi forskot á næstu menn í Færeyjartúrnum. Hafsteinn átti sinn versta dag á hjólinu nokkru sinni. Hann endaði daginn 11 1/2 mínútu á eftir Torkil og er fallinn niður í 5. sæti í heildina. Ekki spurning að miklar, langar og erfiðar æfingar og þátttaka í keppninni Reykjavík-Akureyri eru farnar að segja til sín og kappinn orðinn þreyttur. Árni Már hjólaði hinsvegar glæsilega við afar erfiðar aðstæður og er kominn í þriðja sæti samanlagt á eftir Torkil og færeyingnum og hálfíslendingnum Guðmundi Joensen.

Í dag var hjólað á Suðurey í bæði roki og rigningu. Á "Hestinum" sem er fjall sem farið er yfir tvisvar, fuku menn til og frá og fauk Sigurgeir útí móa og Gunnlaugur ofaní skurð en báðir sluppu með skrekkinn. Pétur Þór lýsir tilburðum Sigurgeirs skemtilega á www.hfr.is. Alls hættu 6 keppendur í dag og segir það sína sögu.

Í liðakeppninni hélst hinsvegar staðan óbreytt, Hjólamenn (Sigurgeir og Gunnlaugur með lánsmanninn Hlöðver úr HFR) eru enn í þriðja sæti, HFR (Hafsteinn, Árni og Pétur) í öðru og GTG (Gunnar, Torkil og Guðmundur) í því fyrsta.

Veðurspá morgundagsins er ekki fýsileg en við vonum það besta enda ekki líklegt að við verðum sendir um fjöll og firnindi í roki eftir atburði dagsins. Er áformað að hjóla 109 km á Austurey með endamörk í Þórshöfn.

Sjá úrslit hér

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter