 |

5. dagleið í Færeyjartúrnum var aflýst vegna veðurs. Því standa úrslitin eins og þau voru í eftir 4. dagleið. Torkil Veyhe stendur uppi sem sigurvegari, Guðmundur Joensen annar og Árni Már flottur í þriðja sæti. Alir þessir voru nokkuð öruggir, hver með sitt sæti eftir gærdaginn, svo líklegast hafði það ekki nein áhrif á lokastöðu efstu manna þó ekki væri keppt í dag.
Í liðakeppninni varð engin breyting, Team GTG fyrstir, HFR aðrir og Hjólamenn í þriðja.
|