|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Guðmundarlundur - 3. bikar í fjallahjólreiðum
miðvikudagur, júní 24

Guðmundarlundur. Breyting á braut


Við brautarskoðun í gærkvöldi var töluverð umferð hestamanna og vélknúinna ökutækja í nágrenni Guðmundarlundar. Til að tryggja sem best öryggi keppenda verður brautinni breytt á þann máta að megnið af keppninni fer fram innan Guðmundarlundar. Byrjað verður á að hjóla 1 stóran hring eins og upphaflega var áætlað og svo 11 hringir til viðbótar inni í Guðmundarlundi, eða samtals 12 hringir. Kvennaflokkur og B flokkur karla hjóla 6 hringi.




Nánara kort af leiðinni: smellið til að stækka.

Keppnin fer fram á hring sem myndaður er af blöndu af skógarstígum og moldarvegum.







Hjólamenn halda 3. bikar í fjallahjólreiðum miðvikudaginn 1. júní kl. 19.


Lýsing leiðar:

Keppnin fer fram í Guðmundarlundi í Heiðmörk. Keppt er á 3,6 km hring sem er blanda af skógarstígum og moldarvegum (sjá kort). Karlaflokkur hjólar 6 hringi (c. klst.) og kvennaflokkur hjólar 3 hringi (c. 30 mínútur). B flokkur karla hjólar einnig 3 hringi.

Brautarskoðun fer fram mánudaginn 29. júní kl. 19.


Flokkar:

Keppt verður í eftirfarandi flokkum, bæði í karla og kvennaflokki:

15-16 ára

17-18 ára

Meistaraflokkur

H-30

H-40


Opinn B flokkur (einungis í karlaflokki)


Skráning:

Forskráningargjald er kr. 1.500. Eftir kl. 13 þriðjudaginn 30. júní hækkar skráningargjaldið í 2.500 kr.

Vinsamlegast senda tölvupóst á sigurgeir@tono.is með nafni, kennitölu og flokki ásamt því að senda greiðslukvittun úr heimabanka.

Bankaupplýsingar:

kt. 580105-0840

reikn. nr. 0101-26-705815


Annað:

Hjólamenn áskilja sér rétt til að veita ekki verðlaun í þeim flokkum sem enginn keppandi hefur skráð sig til leiks þegar forskráningu lýkur.


Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppnum á vegum Hjólamanna.

Hjálmaskylda er í öllum keppnum á vegum Hjólamanna.






Nánara af staðsetningu Guðmundarlundar; smellið á mynd til að stækka.

Til að komast að Guðmundarlundi farið frá Breiðholtsbraut eins og eigi að fara Þriggjavatnaleið en beygt til vinstri á fjórða hringtorgi, inn á götuna Þingmannaleið, einnig merkt "Heimsendi". Síðan er farið beint gegnum eitt hringtorg en farið til hægri á því næsta. Fljótlega sést í tréin sem mynda Guðmundarlund.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter