|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Hvalfjarðarkeppnin
laugardagur, júní 27
Frétt tekin af heimasíðu HFR:

Hafsteinn Ægir Geirsson og Lára Bryndís Eggertsdótir sigruðu í Hvalfjarðarkeppninni í morgun. Eftir 6 km var tekinn sprettur í langri og brekku og þar náðu 6 keppendur forystu en það voru Hafsteinn, Pétur, Árni Már, Sigurgeir, Hákon Hrafn og Hlöðver. Í brekkunni eftir hvalstöðina náðu svo Hafsteinn, Árni og Pétur að hrista hina þrjá af sér og þeir jóku svo forskotið jafnt og þétt og voru saman þegar endasprettur hófst. Hafsteinn (TREK) reyndist lang sterkastur þar og kom fyrstur í mark á tímanum 2:04:13, Pétur (SCOTT) varð annar og Árni Már (SCOTT) þriðji en þeir fengu báðir tímann 2:04:18. Þeir voru allir að halda um 36km meðalhraða á klst. Hákon hjólaði einn síðustu 15 km eftir að Sigurgeir hafði lent í vandræðum með hjólið sitt og náði að halda fjórða sæti en um mínútu á eftir honum kom svo þéttur hópur.

Í kvennaflokki sigraði Lára Bryndís á tímanum 1:25:15. Þetta er þriðji sigur hennar á skömmum tíma enda í gríðarlega góðu formi. Eva Margrét Einarsdóttir varð í öðru sæti aðeins tveimur mínútum á eftir Láru Bryndísi. Stefanie Gregersen varð svo þriðja.
Eftir keppni buðu nokkrir félagar í HMS upp á úrvals svalandi coladrykki og Prins Póló og var því vel tekið. Útilíf kostaði verðlaun og voru bikarar veittir fyrir fyrsta sæti í karla- og kvennaflokki. 4 keppendur voru mættir í kvennaflokk sem hjólaði 40km og 12 keppendur í karlaflokki sem hjólaði 75 km.

Það var Hjólreiðafélag miðaldra skrifstofumanna (HMS) sem hélt keppnina og var hún fyrsta opinbera keppnin sem þeir halda og tókst vel.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter