Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Bláalónsþrautin 2009
fimmtudagur, júní 11
Nú er einungis nokkrir dagar í stærsta hjólreiðaviðburð ársins, hina árlegu Bláalónsþraut á fjallahjóli sunnudaginn 14. júní. Keppnin fer nú fram í 14. sinn. Bláalónsþrautin er fyrst og fremst hjólreiðamót fyrir almenning og tilvalin fyrir fólk sem vill reyna aðeins á sig og njóta góðrar útiveru og fagurs landslags á Reykjanesi í leiðinni. Undanfarin tvö ár hefur fjöldi keppenda verið yfir 150 og stefnt er á að ná þáttakendafjölda yfir 200 núna enda enda hafa vinsældir hjólreiða aukist mjög síðan í fyrra.
Tvær vegalengdir eru í boði. Annarsvegar verður hjóluð hefðbundin leið frá Strandgötu í Hafnarfirði um Djúpavatn að Bláa lóninu (tæpir 60km) og hinsvegar styttri leið (rúmlega 40km) sem hefst við afleggjarann að Djúpavatnsleið.