 Mynd: Hafsteinn áður enn hann fékk Trek-hjólið sem hann vann keppnina á.
Þríþrautafélag Reykjavíkur hélt fyrstu tímakeppni ársins sem haldin var í Hveragerði í morgun. Jens og Remi sáu um framkvæmd keppninnar og gerðu það með mjög röggsamlegum hætti. Kunnum við þeim félögum bestu þakkir fyrir. Aðstæður í Hveragerði voru nokkuð erfiðar. Allhvass vindur af suðvestan, gekk á með skúrum og frekar kalt í veðri. Börðust því hjólreiðakapparnir við mikinn mótvind í áttina að Þorlákshöfn en eftir snúning var blússandi meðvindur sem gerði það að verkum að sumir keppendur náðu allt að 70 km hraða. Þó svo að aðstæður hafi ekki verið með besta móti er það umhugsunarefni hve fáir keppendur mættu. Einungis 13 keppendur voru skráðir til leiks og var enginn þáttakandi í kvennaflokki. Er hér með sérstaklega lýst eftir þríþrautaköppum landsins sem létu þessa keppni algerlega fram hjá sér fara. Hafsteinn Ægir Geirsson (HFR) var að venju í nokkrum sérflokki og sigraði glæsilega á tímanum 29:46. Gunnlaugur Jónasson (Hjólamenn) tók annað sæti rúmri mínútu á eftir, eða 30:48. Í þriðja sæti kom svo Hákon Hrafn Sigurðsson (HFR) á tímanum 31:56. Til gamans má geta þess að einungis munaði 45 sekúndum á 3. til 7. sæti svo að keppnin var nokkuð spennandi um hver hreppti bronsið. Árangur Pétur Þórs Ragnarssonar (HFR) var sérstaklega eftirtektaverður. Hann tók þátt í sinni fyrstu tímakeppni og sýndi glæsileg tilþrif með því að næla sér í 7. sætið og vera einungis rétt á eftir mun reyndari tímatökuköppum. Nánari úrslit má sjá á úrslit
|