Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
3. bikar í götuhjólreiðum
laugardagur, maí 23
3. bikar á Þingvöllum í götuhjólreiðum
Hjólamenn halda 3. bikar í götuhjólreiðum sunnudaginn 7. júní kl. 10.
Lýsing leiðar:
Keppnin fer fram í Þjóðgarðinum á Þingvöllum.Startað verður við þjónustumiðstöðina og hjólaðir 4 hefðbundnir hringir (réttsælis), eða 68 km.Kvennaflokkur hjólar 2 hringi.
Flokkar:
Keppt verður í eftirfarandi flokkum, bæði í karla og kvennaflokki:
15-16 ára
17-18 ára
Meistaraflokkur
H-30
H-40
H-50
Skráning:
Forskráningargjald er kr. 1.500.Eftir kl. 13 föstudaginn 5. júní hækkar skráningargjaldið í 2.500 kr.
Vinsamlegast senda tölvupóst á sigurgeir@tono.is með nafni, kennitölu og flokki ásamt því að senda greiðslukvittun úr heimabanka.
Bankaupplýsingar:
kt. 580105-0840
reikn. nr. 0101-26-705815
Annað:
Hjólamenn áskilja sér rétt til að veita ekki verðlaun í þeim flokkum sem enginn keppandi hefur skráð sig til leiks þegar forskráningu lýkur.
Þjóðgarðsvörður biður keppendur um að leggja bifreiðum ekki við þjónustumiðstöðina heldur við bílaplanið hjá tjaldstæðunum þar sem endamarkið verður.
Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppnum á vegum Hjólamanna.
Keppendur eru minntir á að virða almennar umferðarreglur.
Hjálmaskylda er í öllum keppnum á vegum Hjólamanna.