Leiðin er öll á malbiki (eða olíumöl) og er lítil sem engin umferð á þessum vegum, sérstaklega á sunnudagsmorgnum. Engar erfiðar brekkur eru á leiðinni en nokkuð um aflíðandi hæðir, en heildar hækkun er ekki mikil (óþekkt stærð). Hins vegar er vel hægt að gera ráð fyrir að sunnanvindurinn geti haft sín áhrif ef áttin er þannig.
Að venju er hjálmaskylda og keppendur eru á eigin ábyrgð alla keppnina.
Skráning fer fram á
issi@islandia.is og er skráningarfrestur til
þriðjudagsins 28. apríl. Skráningargjaldið er 1500 kr sem greiðist á mótsstað áður en ræsing fer fram.
Öllum keppendum verður boðið uppá samlokur, kleinur, kaffi og orkudrykki að keppni lokinni, á meðan verðlaunaafhendingin fer fram. Einnig er öllum boðið í sund í Sundlauginni í Sandgerði.
Fjölbreytt útdráttarverðlaun verða dregin út í lok keppninnar.
Helstu styrktaraðilar keppninnar eru:
Sparisjóður Keflavíkur, Sandgerðisbær, Sigurjónsbakarí, Reykjanesbær, Rolf Johansen og CO , IGS flugeldhús, Vatnaveröld, Nýsprautun, KODA, GÁP, Sunddeild Njarvíkur, Humarsalan