
Gunnlaugur Jónasson sigraði í dag Kringlukeppnina sem haldin hefur árlega nú í fimmta sinn. Sigurgeir Agnarsson tryggði sér annað sæti og Pétur Þór Ragnarsson í því þriðja.
Sex keppendur tóku þátt. Brad Evans kláraði í fjórða sæti en Hafsteinn Ægir og Sigurður Hlöðversson kláruðu ekki.
Keppt var á sama hring og áður sem telur um 800 metra um bílastæðahús Kringlunnar og gömlu Borgarkringlu og sem fyrr var hjólað í 30 mín og þá hringt inn síðasta hring. Í ár var veitt auk hinna hefðbundnu verðlaunapeninga, gull, silfur og brons innkaupakerra sem þótti vel við hæfi. Hjólamenn Þakka öllum sem komu að keppninni, Kringlunni fyrir leyfi og áhorfendum sem mættu. Heildarúrslit 1. Gunnlaugur Jónasson, 22 hringir, 30mín 21sek 2. Sigurgeir Agnarsson, 22 hringir, 31 mín 30 sek 3. Pétur Þór Ragnarsson, HFR, 21 hringur, 30 mín 42 sek 4. Brad Evans, Hjólamenn, 21 hringur, 31mín 21 sek Hafsteinn Ægir 16 hringir Hlöðver Sigurðsson 6 hringir
|