
Frændur vorir í Færeyjum eru ekki að velta hlutunum of lengi fyrir sér og eru þegar búnir að ákveða fyrirkomulagið á Statoil Kring Føroyar sem haldin verður í 14. sinn næsta sumar. Keppnin mun fara fram 15. til 19. júlí og verður með svipuðu sniði og undanfarin ár:
15. júlí Klakksvík - Prólóg- 8 km 16. júlí Austurey - 113 km 17. júlí Sandey - ITT - 27 km 18. júlí Suðurey - 77 km 19. júlí Straumey - 109 km
Stærsta breytingin í ár er að leyfilegt verður að hafa 3 manna lið. Þessi breyting mun væntanlega gefa peletóninu nýja vídd og það verður spennandi að sjá hvort að hún muni hafa áhrif á röðun efstu manna miðað við úrslit og þáttakendur fyrri ára.
Svo er bara að vona að krónan fari eitthvað að braggast fyrir sumarið og að íslenskir hjólreiðamenn geti fjölmennt til Færeyja í júlí.
|