|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Kringlukeppnin 4. janúar
þriðjudagur, desember 30

Næstkomandi sunnudag, 4. janúar, halda Hjólamenn áramót, Kringlukeppnina í bílastæðahúsinu vestan Kringlunnar.

Keppnin hefst kl. 10.00, og eru menn vinsamlegast beðnir að fyrirfram skrá sig með því að senda tölvupóst á sigurgeir@tono.is. Einnig er hægt að skrá sig á staðnum frá 9.30 á keppnisdaginn. Keppnisgjald er kr. 500.

Hjólað verður í 30 mínútur á hring sem er um 750 m langur og síðan einum hring bætt við 1. mann. Bílastæðahúsinu verður lokað á meðan á keppninni stendur. Þar sem aðstæður eru þröngar á köflum og smáhætta á að bílar sem eru á staðnum fari af stað þurfa keppendur að gæta ýtrustu varkárni. Hægari keppendur skulu víkja fyrir hraðari.

Hjólamenn bjóða upp á brautarskoðun næstkomandi laugardag milli kl. 7 og kl. 8 að morgni til.

Hjólamenn þakka Rekstrarfélagi Kringlunnar fyrir leyfi til keppnishalds.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter