
Í dag fór fram kynning í París á þeim dagleiðum sem hjólaðar verða í Tour de France næsta sumar. Óhætt er að segja að 2009 útgáfan af túrnum sé mjög spennandi og gefi fyrirheit um skemmtilega og opna keppni. Undanfarin ár hafa úrslitin yfirleitt ráðist, eða verið innsigluð, í tímatökukeppni stuttu áður en haldið er til Parísar. Nú er búið að snúa þessu við því næst síðasta dagleiðin verður sannkallur risadagur, hefst í Montélimar og endar upp á hinu goðsagnakennda Mount Ventoux. Aldrei áður í sögu túrsins hefur svona stórt klifur verið jafn nálægt endamarkinu í París. Klifrar ættu því að geta sótt í sig veðrið á síðustu dögum túrsins ólíkt því sem hefur verið undanfarin ár þar sem sérfræðingar í tímatöku hafa oft gert góða hluti meðan klifraranir hafa verið í meiri varnarbaráttu við að halda fengnum hlut. Túrinn er því í raun galopinn fram á næst síðasta dag.
Tour de France 2009 verður mjög alþljóðlegur og mun byrja í Mónakó og koma svo við á Spáni, Andorra, Sviss og Ítalíu. Dagleiðirnar eru sem hér segir:
July 4, Stage 1: Monaco - Monaco (ITT), 15km July 5, Stage 2: Monaco - Brignoles, 182km July 6, Stage 3: Marseille - La Grande-Motte, 196km July 7, Stage 4: Montpellier - Montpellier (TTT), 38km July 8, Stage 5: Le Cap d'Agde - Perpignan, 197km July 9, Stage 6: Gérone - Barcelone, 175km July 10, Stage 7: Barcelone - Andorre Arcalis, 224km July 11, Stage 8: Andorre-la-Vieille - Saint-Girons, 176km July 12, Stage 9: Saint-Gaudens - Tarbes, 160km July 13, Rest day: Limoges, July 14, Stage 10: Limoges - Issoudun, 193km July 15, Stage 11: Vatan - Saint-Fargeau, 192km July 16, Stage 12: Tonnerre - Vittel, 200km July 17, Stage 13: Vittel - Colmar, 200km July 18, Stage 14: Colmar - Besançon, 199km July 19, Stage 15: Pontarlier - Verbier, 207km July 20, Rest day: Verbier, July 21, Stage 16: Martigny - Bourg-Saint-Maurice, 160km July 22, Stage 17: Bourg-Saint-Maurice - Le Grand-Bornand, 169km July 23, Stage 18: Annecy - Annecy (ITT), 40km July 24, Stage 19: Bourgoin-Jallieu - Aubenas, 195km July 25, Stage 20: Montélimar - Mont Ventoux, 167km July 26, Stage 21: Montereau-Fault-Yonne - Paris Champs-Élysées, 160km
Stærstu fallbyssurnar fyrir 2009 útgáfuna af túrnum eru þegar búnar að tjá sig um hvernig þeim líst á túrinn. Sastre sem vann nú í ár leist nokkuð vel á og benti á það væru margir fjallatoppar sem hentuðu vel klifurgeit eins og honum og einungis 55 km af einstaklingskeppni í tímatöku. Cadel Evans sagði 2009 útgáfunar vera "áhugaverða" en sagðist fyrirfram telja að Astana liðið með þá Contador og Armstrong hlyti að teljast mjög sigurstranglegt. Contador hefur ekki enn tjáð sig um túrinn en Armstrong sagði að þetta væri mjög "uppfinningasöm og áhugverð" útgáfa. Allt er þó enn á huldu um hvort að hann taki þátt í 2009 túrnum, einungis er staðfest að hann verði með í Tour Down Under, Tour of California og Giro d'Italia
|