 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
Tjarnarspretturinn 20. sept 2008, klukkan 14:30 |
fimmtudagur, september 18 |
 |
 |
 |
Núna er komið að því að bestu götuhjólreiðamenn landsins leiða saman hjólhesta sína í æsilegustu og skemmtilegustu götuhjólakeppni ársins. Í ár er von á metfjölda áhorfenda þar sem hjólalestir hafa aldrei verið fleiri sem leggja leið sína frá öllum hlutum höfuðborgarsvæðisins að tjörninni til að sjá þennan spennandi viðburð.
Fyrirkomulag keppninnar er þannig að skipt er niður í karla og kvennaflokka og hjóla karlar 15 hringi í kringum tjörnina á meðan konur hjóla 10 hringi. Úrsláttarfyrirkomulag er á keppninni sem virkar þannig að ef fremsti maður fer frammúr keppanda sem kominn er hring á eftir þarf sá sem farið er framúr að víkja úr brautinni næst þegar hann fer yfir ráslínu. Keppnin er einstaklega hröð og spennandi því beyjur eru krappar og hægt að ná miklum hraða og voru hröðustu keppendur í fyrra á yfir 40 km. meðalhraða í brautinni. Götunum í kringum tjörnina er lokað og fá því keppendur að njóta sín í brautinni og áhorfendur að njóta frábærrar skemmtunar.
Hanna Birna borgarstjóri ræsir keppnina við ráðhúsið klukkan 14:30 á laugardaginn en húsið opnar klukkan 13:00 og skráning fer fram klukkan 13:30. Þáttaka í keppninni er í boði Samgönguviku og þáttaka því ókeypis.
Við viljum við hvetja alla götuhjólamenn að taka þátt.Í Ráðhúsinu verður einstaklega fjölskylduvæn dagskrá og mun leikarinn Felix Bergsson sjá um að stytta fólki stundir auk þess sem færustu Freestyle hjólasnillingar landsins verða með hjólasirkus inní Ráðhúsinu strax að keppni lokinni og fram að verðlaunaafhendingu.
Hér má svo sjá tímasetningar og hvaða hjólalestir leggja af stað sem enda svo á Tjarnarsprettinum eftir að hafa sameinast í Nauthólsvík 11:30 frá Hafnarborg í Hafnarfirði 12:10 frá Sjálandsskóla í Garðabæ 12:50 frá Gerðasafni í Kópavogi 11:30 frá nýja Miðbæjartorginu í Mosfellsbæ 12:00 frá Hallsteinshöfða í Grafarvogi 12:30 frá Minjasfni Orkuveitunnar í Elliðaárdal 13:00 frá Vesturbæjarlaug 13:45 Allir hjóla saman frá Nauthólsvík að Ráðhúsi Reykjavíkur 14:30 Hanna Birna ræsir Tjarnarsprettinn á Götuhjólum 15:00 Hjólasirkus Freestyle snillinga í Ráðhúsinu í Reykjavík 15:30 Verðlaunaafhending Tjarnarsprettsins 16:00 Reykjavíkur DownTownHill 2x frá Hallveigarstíg niðurfyrir MR
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |