|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Kambakeppni 2008
föstudagur, september 12
Hjólreiðafélag Reykjavíkur heldur hina árlegu Kambakeppni í götuhjólreiðum ITT sunnudaginn 14. september 2008.
Keppnin hefst klukkan 11:00.Hjólað verður frá hringtorginu við Hveragerði og að afleggjaranum þar sem Slysavarnarskýlið var upp á miðri Hellisheiði. Þetta er ca. 8,9 km og 320 m hækkun.

Hjólreiðamenn hafa haft það fyrir sið að keppa upp Kambana í rúm tíu ár. Metið á þessari leið, frá hringtorgi við Hveragerði, upp að sæluhúsinu á Hellisheiði, er 18:29’.
Keppt er í flokkum 18 ára og yngri Opnum flokki 19-39 og Garpar 40+ og 50+, kvenna og karlaflokki. Keppnisgjald er 1500 krónur,

Keppendur greiða keppnisgjaldið inn á reikning HFR. Kennitala Hjólreiðafélags Reykjavíkur: 430194-2089Reikningsnúmer: 132-26-2089 (Landsbankinn í Smáralind)Vinsamlega sendið kvittun og skráningu á hfr@vortex.is .

Skoðun öryggisbúnaðar lýkur hálftíma fyrir keppni. Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppnum HFR. Allir keppendur skulu nota hjálm.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter