 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
 |
 |
Íslandsmeistari karla í götuhjólreiðum árið 2008 er Hafsteinn Ægir Geirsson. Hann sigraði glæsilega á mótinu sem fór fram á Akureyri í dag, 30. ágúst. Tvær vegalengdir voru í boði, 96 km og 42 km sem kvennaflokkar og garpaflokkur fóru. Hjólað var frá Akureyri austur að Goðafossi og til baka og þar með farið tvisvar sinnum yfir Víkurskarð. Keppendur í styttri vegalengd snéru hinsvegar við efst í Víkurskarði.
Út að Víkurskarði hélst meistaraflokkurinn nokkurn veginn saman, en í skarðinu fór að slitna upp úr honum og Hafsteinn, Árni, Davíð, Hákon og Sigurgeir slitu sig frá. Á bakaleiðinni upp Víkurskarðið slitu Hafsteinn, Davíð og Árni sig svo frá öðrum keppendum, Davíð varð svo að hætta keppni þannig að Árni og Hafsteinn hjóluðu saman langleiðina í mark. Hafsteinn skildi við Árna í síðustu brekkunni áður en komið var inn á Akureyri og kom einn í mark 22 sekúndum á undan og Hákon Hrafn Sigurðsson varð þriðji.
Í styttri vegalengdinni náði Valdimar Valdimarsson afgerandi forystu sem hann hélt til enda. Bryndís Þorsteinsdóttir sigraði í kvennaflokki þar sem hún hjólaði ein að þessu sinni.
42 km 1 Valdemar Valdemarsson Garpar 01:25:32 1 Bryndís Þorsteinsdóttir 15/16 01:40:09 HFR 2 Guðmundur Bjarnar Guðmundsson Garpar 01:40:47 3 Unnsteinn Einar Jónsson Garpar 01:40:47
96 km Hafsteinn Ægir Geirsson MF 02:49:19 HFR Árni Már Jónsson MF 02:49:41 HFR 1 Hákon Hrafn Sigurðsson H30 02:53:44 HFR 2 Sigurgeir Agnarsson H30 02:58:56 Hjólamenn 1 Rúnar Karl Elfarsson 17/18 03:01:11 HFR 3 Brad Evans H30 03:01:12 Hjólamenn 1 Elfar Rúnarsson H40 03:01:17 HFR Hlynur Þorsteinsson MF 03:04:01 HFR Pétur Þór Ragnarsson MF 03:02:25 HFR 2 Gísli Ólafsson H40 03:04:15 HFR Valgarður Sæmundsson MF 03:16:26 Davíð Þór Sigurðsson Hætti
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |