Hafsteinn Ægir Geirsson sigraði með glæsibrag í Landskeppni Ísland-Færeyjar 2008. Hann sigraði alla leggi, þar á meðal keppni dagsins sem fór fram á Þingvöllum og lauk með endaspretti. Árni Már hélt öðru sætinu og Gunnlaugur Jónasson varð þriðji.
Ísland sigraði landskeppnina með nokkrum yfirburðum en tími þriggja fremstu manna á hverjum legg taldi til sigurs í henni.
Í kvennaflokki sigraði Bryndís Þorsteinsdóttir, hún var því miður eina konan sem tók þátt.