 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
Landskeppnin 2008 |
þriðjudagur, ágúst 12 |
 |
 |
 |
Eftirfarandi leggir verða hjólaðir í Landskeppninni við Færeyjar sem haldin verður 15. til 17. ágúst.
Föstudagur 15. ágúst kl. 20.00 Criterium, Vallarhverfi, Hafnarfirði. 20 hringir, ca. 40 km. Veitt verða aukaverðlaun í báðum kynjum fyrir sprett í hring 10 og hring 15.
Brautin er sú sama og var notuð í Íslandshjólreiðunum í ár, syðst í Vallarhverfi og hægt að keyra inn á hana til vesturs frá Krísuvíkurvegi, rétt sunnan við hringtorgið þar sem var snúið í Íslandsmótinu í Tímakeppni.
Laugardagur, 16. ágúst kl. 11.00 Tímatökukeppni, ræst við Hveragerði. Hjóluð ein buna fram og aftur Ölfusið, 20 km.
Sunndagur 17. ágúst kl. 10.00 Hópstart, Þingvellir 84 km. Hjólaðir verða 4 hringir í þjóðgarðinum, rangsælis með krók upp á Lyngdalsheiði þar sem snúið verður við á keilu eftir 2 km.
Á sunnudagskvöld klukkan 8 verður svo partí hjá Haffsteini Ægi að Bauganesi 1a með mat og húllumhæi.
Þáttökugjald er krónur 2000 fyrir hverja dagleið og 1000 fyrir samkvæmið en 5000 fyrir alltsaman. Reikningsnúmer er 101-26-705815, kennitala 580105-0840 Sendið staðfestingu á sigurgeir@tono.is. Til hagræðis er mikilvægt að keppendur skrái sig sem fyrst til leiks.
Búist er við góðri þátttöku okkar manna en eftirtaldir 8 hjólagarpar frá Færeyjum eru skráðir til leiks: Susanna Skyv Sörensen, Torkil Veyhe, Gunnar Dahl Olsen, Gudmund Joensen, Sigmund Olsson, Bergur Johansen, Jóhann Brend, Bogi Magnusson og Jóhann Jakobsen, liðstjóri
Mynd af Kriteriumbrautinni:
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |