|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Staðan í landskeppninni
laugardagur, ágúst 16

Hafsteinn Ægir Geirsson leiðir einstaklingskeppnina í landskeppni Íslands og Færeyja. Íslensku hjólreiðamennirnir hafa þar með tekið afgerandi forystu í Landskeppninni sem framar öðru er að þakka vasklegri framgöngu Hafsteins í 2 fyrstu leggjunum. Má heita að sigur Íslands sé allt að því í höfn þótt síðasti leggurinn sé en eftir.

Hafsteinn sem kom fyrstur í mark á fyrstu tveim dagleiðunum, sigraði glæsilega á þeirri fyrstu, stakk af með Árna Má Jónssyni og náði að hringa alla aðra keppendur á eftir 20 hringi.
Nokkurs miskilnings gætti með það útsláttar fyrirkomulag sem við höfum notað hérlendis undanfarin ár í "kriterium-keppnum". Þetta olli því að Færeysku keppendurnir voru sárir og óánægðir eftir keppnina og bentu á að aðferð okkar við að "flagga" menn út væri ekki í takt við alþjóðlegar reglur og hefðir. Dómari keppninnar ákvað því að láta alla keppendur hafa sama tíma og þriðji maður, færeyjingurinn Gudmund Joensen, sem sem var sá síðasti sem Hafsteinn hringaði. Er full ástæða til að skoða þær reglur sem við höfum notað nánar.
Árni Már hjólaði mestallan tímann með Hafsteini og kom í mark 15 sek á eftir honum. Hann náði þar með 2'30" forskoti á alla aðra keppendur í heildarkeppninni.

Hafsteinn var ekki hægari á annarri dagleið, þá kom hann í mark 1'31" á undan Hjólamanninum Gunnlaugi Jónassyni og 2'01" á undan Torkil Veyhe frá Færeyjum. Elfar Rúnarsson varð svo fjórði í mark 52 sekúndum á eftir Torkil. Árni Már fann vafalaust fyrir átökunum daginn áður og varð 9. tæpum fjórum mínútum á eftir Hafsteini.

Samanlagt er eftir tvær dagleiðir leiðir Hafsteinn Árna með rúmum fjórum mínútum, Gunnlaugur er þriðji, 7,5 sekúndum á eftir Árna og Torkil fjórði, 30 sekúndum þar á eftir. Það stefnir því í mikla barátttu um sætin með Hafsteini á pallinum í þriðju og síðustu keppninni á Þingvöllum á sunnudag.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter