
Hjólreiðafélag Reykjavíkur heldur Meistaramót Íslands í Tímakeppni miðvikudaginn 6. ágúst 2008.
Keppnisleiðin er hefðbundinn 20 km braut, keppnin verður haldin á Krísuvíkurveginum. Rásmark er við afleggjara upp í Bláfjöll á Krísuvíkurveginum ( sjá kort). Keppnin hefst kl: 20:00.
Boðið verður upp á B flokka í ár. B-flokkur hjólar sömu braut, 20 km.
Aldurskipting er 39 ára og yngri, 40 ára og eldri. ( B - FLOKKUR KARLA eru þeir sem hafa gaman af að hjóla en hafa ekki verið að keppa á bikarmótum og stærri keppnum innan ÍSÍ. )
Sigurvegarar í B-flokki færast upp í opin flokk að ári.
Aldur Karlar Konur
18 ára og yngri 20 km 20 km Meistaraflokkur 20 km 20 km H-30+ 20 km 20 km H-40+ 20 km 20 km H-50+ 20 km 20 km
Keppnisgjald er 1500 ef skráð er fyrir kl. 13:00 á þriðjudaginn 5. ágúst. ATH: ekki er nóg að skrá sig, það þarf líka að borga keppnisgjaldið. Skráning senda E-mail á hfr@vortex.is með nafni, kennitölu og flokk.
ATH: Keppnisgjald er 2.500 kr ef keppandi skráir sig eftir kl. 13.00 þriðjudaginn 5. ágúst.
Sendið kvittun á hfr@vortex.is þar sem fram kemur nafn og kennitala og greiðslukvittun keppnisgjalds (í heimabanka).
Kennitala Hjólreiðafélags Reykjavíkur: 430194-2089 Reikningsnúmer: 132-26-2089 (Landsbankinn í Smáralind)
Skráningu keppenda og skoðun öryggisbúnaðar lýkur hálftíma fyrir keppni.
Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppnum HFR.
|