 |

Torkil Veyhe sigraði Haftein Ægi Geirsson í endaspretti á fyrsta legg, en hjólaðir voru 113 km um Austurey í dag. Hafsteinn Ægir varð fyrir tví óláni að losna úr pedalanum í endasprettinum, náði að festa sig aftur og var kominn með yfirhøndina aftur tegar skórinn losnaði enn og aftur. Hann rann tví yfir línuna sitjandi á topprørinu en tókst að halda sér uppréttum. Nokkuð vonsvikinn en tað jákvæða er að hann virðist hafa í fullu tré við Torkil trátt fyrir að hafa lent á eftir honum í dag. Gudmundur Joensen sem er nýjasti hjólakappi Færeyinga varð svo triðji, 3:30 mín á eftir fyrsta manni. Leggurinn í dag er sá lengsti og erfiðasti í keppninni, er farið yfir sex fjøll, taðhæsta kemur mjøg snemma og svo taka tau við eitt af ødru. 4 keppendur komu saman yfir tað fyrsta, Eidsskarðið, sem er hæsti punktur keppninnar, en tað voru teir trír sem nefndir eru hér að ofan og Hjólamaðurinn Gunnlaugur Jónasson. Honum tókst ad fylgja hinum yfir fyrstu trjú fjøllin en varð svo ad gefa eftir. Keppnin heldur svo áfram á morgun með tímakeppni á Sandey og mun Hafsteinn væntanlega mæta eitraður til leiks. Gunnlaugur varð fyrstur af pensjonistunum eins og einhver uppnefndi flokk teirra troskuðu, teirra sem eru 45 ára og eldri.
|