|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Heiðmerkur Áskorun
mánudagur, júní 23
Hjólreiðafélag Reykjavíkur og Skógræktarfélag Reykjavíkur

Hin árlega Heiðmerkuráskorun verður haldin Fimmtudaginn 26. júní kl 20:00. Í ár verður keppnin með svipuðu sniði og fyrir ári. Engum hindrunum eða torfærum verður bætt við heldur verður náttúrulegum hindrun eins og þvottabretti, holur og mjög þurr jarðvegur látið nægja. Nýung í ár er B-flokkur Karla.
Boðið verður upp á 3.vegalengdir. 3.6 km fyrir 16 ára og yngri. ( sér hringur fyrir þennan aldurshóp. Keppt verður bæði í stelpu og stráka flokki 11-12, 13-14 og 15-16ára) 12 km. fyrir opin flokk kvenna og B - flokk karla og 24 km. fyrir opin flokk karla 17 ára og eldri. Hver hringurinn er ca. 12 km. Rásmark er við Elliðavatnsbæinn, og hefst keppnin klukkan 20:00, skráningu keppenda og skoðun öryggisbúnaðar hjólsins lýkur 19:30.
( B - FLOKKUR KARLA eru þeir sem hafa gaman af að hjóla en hafa ekki verið að keppa á bikarmótum og stærri keppnum innan ÍSÍ. )
Sigurvegarar í B-flokki færast upp í opin flokk að ári.

Sjá kort af leiðinni. Sjá leið yngri en 16 ára
Hvernig komumst við akandi að rásmarki skoða kort.

Keppnisgjald er 1.500 kr. ef keppandi skráir sig og borgar fyrir kl.18. á þriðjudaginn 23. Júní, ATH( ekki er nóg að skrá sig það þarf líka að borga keppnisgjaldið.) Skránig senda E-mail á hfr@vortex.is með Nafni, kennitölu og flokk

Sendið kvittun á hfr@vortex.is þar sem fram kemur nafn og kennitala og greiðslukvittun keppnisgjalds (í heimabanka).

Kennitala Hjólreiðafélags Reykjavíkur: 430194-2089
Reikningsnúmer: 132-26-2089 (Landsbankinn í Smáralind)

ATH: Keppnisgjald er 2.500 kr ef keppandi skráir sig eftir kl.18. þriðjudaginn 23.júní.

Það léttir mótshöldurum störfin ef keppendur skrá sig tímanlega.
Keppnisstjóri, Þorsteinn s:869 2445 nánari upplýsingar veitir Helga María s:848 7552
Heiðmerkuráskorunin er kjörin keppni fyrir þá sem tóku þátt í Bláalónsþrautinni og ,,vilja meira”.

Hjólreiðafélag Reykjavíkur og Skógræktarfélag Reykjavíkur

Kort af Heiðmörk og upplýsingar um Skógræktarfélag Reykjavíkur

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter