|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Bláalónsþrautin 2008
sunnudagur, júní 8


Bláalónsþrautin fór fram við ágætis aðstæður í 13. skipti í dag, sunnudag. Heldur rættist úr veðrinu en fram eftir vikunni hafði veðurspáin verið heldur óhagstæð. Þegar til kom var hið besta veður þó að nokkur mótvindur væri á köflum. Djúpavatnsleið var all torfær enda mikið búið að rigna dagana á undan og vegurinn víða sundurspólaður eftir rallí mót sem farið hafði fram á laugardeginum. 120 þáttakendur höfðu skráð sig til leiks að þessu sinni. Sú breyting var gerð á starti að allur hópurinn var stöðvaður við kirkjugarðinn í Hafnarfirði áður en hin eiginlega tímataka hófst. Þetta er ágætis fyrirkomulag og kemur í veg fyrir að of mikið teygist á hópnum áður en skeiðklukkan fer í gang.



Að venju var atgangurinn mikill fyrstu kílómetrana. Þegar komið var á Krísuvíkurveg hafði fremst myndast 5 manna hópur (Hafsteinn Ægir, Árni Már, Hákon Hrafn, Gísli Ólafs og Sigurgeir) sem unnu vel saman á malbikaða kaflanum, enda veitti ekki af í töluvert miklum hliðarvindi. Þegar beygt var inn á Djúpavatnsleið sýndi Hafsteinn Ægir klærnar og gaf töluvert í. Árni Már og Sigurgeir fylgdu á eftir en hinn síðarnefndi dróst fljótt aftur úr og beið eftir Hákoni Hrafni og Gísla Ólafs. Gísli Ólafs lenti í því óhappi að detta og skera sig á fingri og missti við það taktinn og datt aftur úr. Sigurgeir og Hákoni hjóluðu saman meira og minna þar til komið var á malbikið á undan Grindavík en þá tókst Sigurgeiri að hrista Hákon Hrafn af sér í brekkunum.


Lokaniðurstöður voru þær að Hafsteinn Ægir sigraði á tímanum 1:50:56, Árni Már var í öðru sæti á tímanum 1:53:13 og Sigurgeir var í þriðja sæti á tímanum 1:59:06. Í kvennaflokki sigraði María Ögn Guðmundsdóttir á 2:40:19, Bryndís Þorsteinsdóttir var í öðru sæti á 2:47:24 og í þriðja sæti var Katla Maríudóttir á 2:52:02.

Hjólamenn þakka HFR fyrir glæsilega keppni og góða umgjörð. Sjáumst aftur að ári liðnu í Bláalónsþrautinni 2009!

Sjá nánar á http://www.hfr.is/

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter