 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
3. dagur Íslandshjólreiða |
sunnudagur, júní 22 |
 |
 |
 |
Hafsteinn Ægir stakk alla af í Hvalfirði í dag, sigraði með um 4 mínútna forskot á næsta mann og gulltryggði sér þar með sigurinn í Íslandshjólreiðunum, 3. árið í röð. Í baráttunni um annað sætið í heildarkeppninni hafði Gunnlaugur betur í rimmu við Árna Má sem lauk með endasprett milli þeirra. Árni varð sjónarmun á undan, en það dugði ekki til, Gunnlaugur átti 3 sekúndur til góða og varð því á undan í heildarkeppninni. Brad Evans tókst að komast upp fyrir Elfar Rúnarsson í keppni um fjórða sætið í heildina.  Keppnin byrjaði mjög rólega, og það var ekki fyrr en Hafsteini fór að leiðast þófið og stakk af rétt fyrir snúning að hlutirnir fóru að gerast. Þrír Hjólamenn ásamt Árna Má stungu þá sem eftir voru í aðalhópnum af skömmu síðar. Gunnlaugur og Brad unnu vel saman, með dyggri aðstoð frá liðsfélaga sínum, Sigurgeiri Agnarsyni, sem fylgdi þeim lengst af. Undir lokinn voru þeir og Árni Már nokkuð á undan öðrum en samt langt á eftir Hafsteini. Þá reyndi Brad "gamla 1-2 trykkið" eins og fréttaþulur Eurosports kallar það, sleit sig frá hinum, með von um að ná öðru sætinu á dagleiðinni eða í besta falli að eyða kröftum Árna ef hann elti hann uppi. Árni lét hann fara, sennilega meira að hugsa um heildarkeppnina en annað sætið á dagleiðinni. En Brad sprakk svo á limminu í veggnum við Hvammsvík, rétt við endamörkin og varð fjórði í mark á eftir Hafsteini, Árna og Gunnlaugi. Allt í allt mjög skemmtilegt mót sem Hjólreiðanefndin getur verið stollt af. Og ef dagleiðirnar verða auglýstar tímanlega næsta ár verður þátttakan vafalaust enn betri.  12 keppendur í karlaflokki og 1 í kvennaflokki kláruðu allar dagleiðirnar, en alls tóku 20 keppendur þátt í ár, 19 í karlaflokki og 1 í kvennaflokki. Verðlaun voru vegleg að vanda, en Glitnir gaf 100.000 kr. í verðlaunafé.Fengu sigurvegarar í karla- og kvennaflokki 35.000 kr. hvor, en 20.000 og 10.000 kr. fengust fyrir 2. og 3. sæti. Kann Hjólreiðanefnd Glitni bestu þakkir fyrir.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |