 |

Hafsteinn Ægir Geirsson sigraði með miklum yfirburðum í fjallahjólakeppni sem fram fór í Guðmundarlundi í Heiðmörk. Hann hjólaði hringina 10 sem farnir voru á tímanum 53:50, rúmum þrem mínútum á undan næstu mönnum, Davíð Þór og Hákoni Hrafni. Bryndís Þorsteinsdóttir, sem var skráð til leiks í flokki 17-18 ára sigraði í kvennaflokki, en hún var því miður ein kvenna. Í yngri flokkum var einnig aðeins einn keppandi, Jakob Einarsson í flokki 13-14 ára, sem skilaði sínu með prýði og hjólaði sinn hring á tímanum 17:55. Á síðustu stundu ákvað keppnisstjóri að breyta brautinni og fella út úr henni stóran malarvegskafla sökum mikillar umferðar hestamanna í blíðviðrinu. Þetta kom sér illa fyrir stærri keppendur sem þyngdaraflið verkar sterkar á, en þeir tóku þessu þó með brosi á vör, þó bautin væri nú vægast sagt erfið, næstum bara klifur og brun til skiptis, þó malarkaflinn væri farinn á fyrsta hring. Einn keppandi varð fyrir því óláni að slíta keðjuna í átökunum en aðrir skiluðu sér í mark. Önnur úrslit urðu sem hér segir: Piltar 13-14 ára: 1. Jakob Einarsson, einn hringur, 17:55 Kvennaflokkur: 1. Bryndís Þorsteinsdóttir, 6 hringir, 54:15 Opinn flokkur: 1 Hafsteinn Ægir Geirsson, 10 hringir, 53:50 2 Davíð Þór Sigurðsson, 10 hringir, 57:30 3 Hákon Hrafn Sigurðsson, 10 hringir, 57:57 4 Árni Már Jónsson, 9 hringir, 54:23 5 Hlynur Þorsteinsson, 9 hringir, 57:03 6 Hlöðver Sigurðsson, 9 hringir, 59:38 7 Einar Jóhannsson, 8 hringir, 53:59 8 Björn Sigurjónsson, 8 hringir, 55:31 9 Haukur Eggertsson, Hjólamönnum, 8 hringir, 58:45 10 Gísli Ólafsson, 8 hringir, 1:00:03 Frosti Sigurjónsson, hætti H-30 1 Hákon Sigurðsson 2 Haukur Eggertsson H-40 1 Einar Jóhannsson 2 Björn Sigurjónsson 3 Gísli Ólafsson Myndir hér
|